Saga Travel í samstarfi við svissnesku ferðaskrifstofuna Kontiki býður upp á beint flug frá Akureyrarflugvelli til svissnesku borgarinnar Zurich. Flogið er með hinu frábæra og trausta svissneska flugfélagi Edelweiss, sem er systurflugfélag Swiss Air og hluti af Lufthansa Group. Flugið er í boði í lok janúar, febrúar og byrjun mars, á þeim tíma er best þykir að heimsækja skíðasvæði Alpana. Flogið er einu sinni í viku á sunnudögum. Flugið er frábær viðbót við sístækkandi flóru alþjóðlegs flugs frá Akureyri, höfuðborgar norðursins.
Verð miðast við flug fram og til baka frá Akureyri. Innifalið í fluginu er eftirfarandi:
Handfarangur
Innrituð taska 20kg
Skíðataska (þarf að skrá stærð og þyngd fyrirfram)
Máltíð um borð
Allir skattar og gjöld
Fullorðnir (12+ára): 99,900kr
Börn (0-11ára): 70,000kr
Hafið samband við Saga Travel til að bóka flugið!
sagatravel@sagatravel.is eða 558-8888
Aðra leið AEY-ZRH ISK 19,900kr (aðeins í boði 31.01.2027)
Aðra leið ZRH-AEY ISK 19,900kr (aðeins í boði 07.03.2027)
Hin leiðin verður rukkuð 50% af heildarverðinu hér að ofan.
WK1305: Akureyri 12:20 -> Zürich 17:00
WK1304: Zürich 08:10 -> Akureyri 11:10
Flogið er kl. 12:20 á sunnudögum frá Akureyri til Zurich og lent kl. 17:00. Flogið er frá Zurich kl. 8:10 og lent á Akureyri kl. 11:10. Flugið er í boði eftirfarandi daga:
31. janúar 2027
7. febrúar 2027
14. febrúar 2027
21. febrúar 2027
28. febrúar 2027
7. mars 2027
Mæting er á flugvelli 2 klukkustundum fyrir brottför. Flugið er óendurgreiðanlegt.

Svissneska ferðaskrifstofan Magic Switzerland býður upp á skíðapakka til Arosa í Sviss. Svæðið er stórglæsilegt og býður upp á fjölbreytta afþreyingu og brekkur fyrir alla aldurshópa og getustig. Ef keyptur er pakki af Magic Switzerland fæst 33% afsláttur af fluginu.
Svæðið: Arosa, um 2,5 tíma akstur frá flugvellinum í Zurich
Hótelið: Færn Altein Arosa
Hér er skjal með því sem hótelið hefur upp á að bjóða!
Athugið að gist er síðustu nóttina í Zurich, sú nótt er líka innifalin.
Skíðapakkarnir eru í boði allt tímabilið
Pakkarnir eru tilvaldir fyrir bæði pör og fjölskyldur, byrjendur sem vant skíðafólk.
Hafið samband við Saga Travel til að bóka pakkann, við tengjum ykkur við Magic Switzerland!
sagatravel@sagatravel.is eða 558-8888